Plebbastuð
Könnun

Engin könnun í gangi, athugaðu aftur seinna.
13.05.2008 00:14:24 / plebbi

Martinique here I come...

Já, ekki nema 2 dagar þar til ég fer til Martinique og ég get bara ekki beðið mig hlakkar svo til. Það verður frábært að fara í smá hita í 2 vikur. Veit samt ekki ef ég kemst í einhverja tölvu meðan ég er úti en það er aldrei að vita hvort ég skrifi eitthvað hérna inn ef ég kemst í tölvu, kem annars heim 28. Maí.

Mér gekk annars bara ótrúlega vel í skólanum og fékk dúndur einkunnir, ætla sko að reyna halda þeim við á næstu önn :haha:
Held að ég hafi bara akkurat fundið það sem mig langar að læra, loksins.

Guðný í sólskynsskapi á leið í 28 stiga hita 8)


» 4 hafa sagt sína skoðun

27.04.2008 23:40:40 / plebbi

Jebb jebb

Bara láta aðeins heyra í mér, já það er enþá púls þó ég sé ekki mjög dugleg að skrifa hérna inn, enda eiginlega alveg hætt að nenna því.

En já skólinn er sem sagt búin, á eftir að fara í 2 lítil próf og eitt lokapróf.

Annað að frétta er að ég er aftur flutt upp á skaga, en þó aðeins í sumar vegna vinnunnar. En eftir sumarið þá flyt ég líklega alveg í bæinn. En ég er búin að leigja herbergið sem ég er að leigja en ég áhvað að leigja það í sumar þar sem að ég verð að vinna í Norðurál í sumar.

Hins vegar verð ég að nefna að það séu aðeins 18 dagar þar til ég fer til Martinique, Jibbý heheheh já mig hlakkar bara frekar til.

Seinnasta laugardag var ég svo með í kökubasar í Kringlunni Jibbý, held það sé með því plebbalegasta sem ég hef gert, en það var sem sagt kökubasar til styrktar Martinique ferðinni. Gekk bara ágætlega.

Hef annars ekkert að segja, en já ég hef ekkert að gera áður en ég fer út held að ég verði ekkert að vinna, þannig endilega verið í bandi :)

» 1 hafa sagt sína skoðun

11.04.2008 11:02:15 / plebbi

Skólinn er að verða búin

HALLó já ég er á lífi, það er bara búið að vera mikið að gera í skólanum og lífið hérna í Reykjavík er bara frábært. Nú er ekki nema 2 vikur eftir af skólanum og svo koma próf, er því á fullu að reyna klára þau verkefni sem ég á eftir að skila.
Fer svo bara í 1 eða 2 próf en í flestum áföngum er lokaverkefni ekki lokapróf sem er bara fínt.

Já er svo farin að telja niður dagan þar til ég fer til Martinique og það er ekki nema 34 dagar, Jibbý. Áhvað svo að setja inn mynd til að sína nákvæmlega hvert ég er að fara :)

http://www.petermaas.nl/extinct/speciesinfo/images/LocationMartinique.gif

» 1 hafa sagt sína skoðun

27.02.2008 14:28:55 / plebbi

Opnir dagar jeijjj

Það eru sem sagt opnir dagar í dag og á morgun. Við í Tækniteiknunninni þurftum ekki að velja neitt í dag og gátum bara verið í skólanum í dag að læra eða ekki. Er sem sagt búin að vera í skólanum síðan kl 9 í morgun og er enþá að læra, jibbý. Veit samt ekki hvað ég ætla að vera lengi að læra í dag, þarf að minnsta kosti að klára 2 verkefni í dag og helst að klára eitt stórt sem ég þarf reyndar ekki að skila fyrr en 10 mars, en það er bara gaman að vera aðeins á undan svo maður drukkni ekki í verkefnum :)

Erum svo öll að fara í ferð á morgun, geggjað. Sem sagt allir þeir sem eru í Tækniteiknunninni. Hlakkar ekkert ótrúlega til en, alltaf gaman að fara í ferð, verst að ferðin er frá kl. 10 til 14.30 en ég er bara í skólanum til kl. 12.35 á fimmtudögum og því styðsti dagurinn. En jæja, þetta verður bara einu sinni þessi ferð.

Já hef svona ótrúlega mikið að segja hehehe eða þannig, bara segja ykkur frá skólanum, geggjað.


» 1 hafa sagt sína skoðun

25.02.2008 10:08:25 / plebbi

Halló aftur

Já, ég ætlaði að vera löngu búin að skrifa blogg, en einhvern vegin nenni ég því ekki, hef ekkert mikið að segja, er bara alltaf í skólanum er búin að vera veik og því frekar slöpp í um viku, og það er ekkert að  lagast.
Ógeðslega kalt í strætó í morgun, shitt..... er fegin að þurfa ekki að taka hann nema sem þegar ég fer upp á skaga. Enda kunna þessir bílstjórar ekki að kveikja á miðstöðinni, og það var helv... -12 stig í morgun. Tærnar og nefið frosnaði, sem betur fer ekkert alvarlegt og er komin með tilfinninguna aftur.

Jú, átti afmæli, Louise bauð mér í mat og það var æði, vorum 5 og borðuðum ótrúlega góðan mat, en hún eldaði ekta breskan afmælis dinner handa mér og köku með 24 kertum, en þegar við fórum út í búð þá var bara til pakki af 24 kertum, þannig að ég blés á öll og svo kveikti hún á einu svo ég gæti óskað mér, híhíhíh. Frábært kvöld

Hélt svo upp á afmælið með Jenný, það var frábært partý. Fullt af skemmtilegu fólki :d

Annars er bara gott af mér að frétta, finnst skemmtilegt að vera í bænum, stutt að fara í herbergið mitt, eina sem ég hef út á að setja er nettengingin í herberginu, en er búin að finna það út að ef ég sit fyrir framan eldúsvaskin þá er það besta signalið þar, hehehehe.

ble.

» 2 hafa sagt sína skoðun

06.02.2008 07:32:15 / plebbi

Afmæli afmæli afmæli

 

 

Já ég er bara orðin 25 og það í dag, finnst það bara fínt.

Í kvöld er mér svo boðið í mat hjá Louise, en það er stelpan sem var að leigja hérna, en hún er ný flutt í stærri íbúð. Hlakka bara til.

Bæ í bili :haha:

 

 

 


» 6 hafa sagt sína skoðun

22.01.2008 18:17:15 / plebbi

Stal þessu af annarri síðu, endilega ef þið hafið ekkert að gera.

1. Hvað kallarðu mig?
2..Hefurðu heyrt mig syngja, ef svo er hvernig hljómaði ég?
3. Hvað á ég eftir að vera að gera á týpísku laugardagskvöldi eftir tvö ár?
4. Þegar þú hugsar um mig, hvaða tvö lög dettur þér fyrst í hug?
5. Ef þú þekktir mig ekki, og mættir mér einhverstaðar, myndirðu halda að ég væri á lausu eða föstu?
6. Þegar þú hugsar til mín hvaða fimm hlutir detta þér fyrst í hug?
7. Hvernig sérðu mig fyrir þér í hljómsveit?
8. Hvernig stelpa er ég, og hvaða týpu flokkarðu mig?
9. Hvað erum við mörg í fjölskyldunni?
10. Hefurðu öfundað mig? Hvers vegna?
11. Hver er uppáhalds söngkonan/söngvarinn minn?
12. Hvaða lag minnir þig mikið á mig?
13. Hverjum öðrum er röddin mín líkust?
14. Hvað giskarðu á að ég verði gömul þegar ég trúlofa mig ?
15. Hversu vel telurðu þig þekkja mig?
16. Hvernig stráka fíla ég?
17. Hvað geri ég oftast þegar ég á frítíma?
18. Hvað er mest einkennandi við mig?

» 5 hafa sagt sína skoðun

22.01.2008 18:09:13 / plebbi

Jeyjjj

Er að fara á fund í kvöld í sambandið við Martinique ferðina, hlakka bara til. Bara svona smá að monta mig og bögga ykkur hin.

 

 

 

 


» 1 hafa sagt sína skoðun

15.01.2008 10:03:13 / plebbi

Nýtt ár

Jæja, það er komið nýtt ár. Stelpan bara hætt í Háskólanum og farin í Tækniteiknun í Iðnskólanum. Og ekki nóg með það, en þá er ég flutt í Reykjavík líka. Er að leigja herbergi sem er bara rétt hjá skólanum. Það munar bara hellinga að þurfa ekki að taka strætó lengur, bara vakna hálftíma áður en ég þarf að mæta í stað þess að vera vakna kl.6 á morgnanna. Fer samt alveg stundum upp á skaga. Enda skólin bara ný byrjaður. En það sem komið er þá er bara ótrúlega skemmtilegt :haha:

Svo er Sigurrós hérna með mér í Tækniteiknaranum og er bara mjög gaman að hafa einhvern sem maður þekkir í skólanum, sem hefur bara ekki verið síðan í Fjölbraut, hehehe.

En já það er mjög gott að eiga heima í Reykjavík það sem komið er, er að leigja í risi, en það eru 2 aðrar stelpur með herbergi þar önnur er Finnsk en hin er Bresk. Sem er líka mjög skemmtilegt. Ætlum að hafa matarboð á morgun svona til að kynnast betur.

En annars er voðallega lítið að frétta.

Bið að heilsa í bili.


» 4 hafa sagt sína skoðun

14.12.2007 17:13:51 / plebbi

Jóla jóla hvað

Var að fatta að það eru bara 10 dagar til jóla. Hef bara engan tíma til að hafa jóla akkurat núna, bara próf próf próf.

Er samt alveg að komast í jólaskap og áhvað því að skreita bara bloggið hjá mér þar sem ég hef ekki tíma til að gera neitt annað hehehe.


» 2 hafa sagt sína skoðun

29.11.2007 11:44:48 / plebbi

Splendid day.

Seinast skóladagur runnin upp. búin að fara í eitt próf og er að læra þanngað til ég fer í það næsta sem er eftir hádegi.

Sigga Lóa og Óli dúllurnar mínar eignuðust myndarinnar strák í gærkvöldi, heilar 16 merkur. Ég kemst seint en síðar meir í heimsókn til þeirra. EN ég fer um leið og ég get. Hlakkar ótrúlega að heilsa upp á þessa nýju manneskju sem við erum öll búin að vera bíða eftir. Svo er hann líka svona hálffrændi minn.

Annars er voðalega lítið að frétta. Jú það eru komnir 5 nýjir nágrannar en Birta hundurinn hjá Hönnu Stínu og Gunna gaut 5 hvolpum :)

 


» 2 hafa sagt sína skoðun

27.11.2007 11:32:35 / plebbi

HÆTTU AÐ RAULA GAUR

Er í skólanum að læra, er orðin geðveik, það situr gaur rétt hjá mér og hann hættir ekki að raula, hann er ekki að hlust á tónlist, bara raula við sjálfan sig á meðan hann er að lesa. Ég nenni ekki að færa mig. Langar samt alveg að pikka fast í hann, hahahah.

Úps hann hlýtur að lesa hugsanir því þegar ég byrjaði að skrifa þetta lét hann sig hverfa, er í þessum orðum að ganga frá og labba í burtu. hehehehehe  Það er ágætt þá þarf ég ekki að nota neitt ofbeldi.

Já, er á fullu að læra og mun halda áfram með það fram til 19. des. Jeijjj, þessu líkur bráðum. HÚffff.....

 

 


» 3 hafa sagt sína skoðun

20.11.2007 11:59:39 / plebbi

Ég er búin að finna lausnina...

 

 já, því miður þá lifa fjólubláir fílar bara í vatni. híhí

En já svarið er að dyslexían vann þrjóskuna. En svona er lífið bara.

Annars er voðalega lítið að frétta af mér, bara alltaf í skólanum. Bara 2 vikur eftir af skólanum þannig það er nóg að gera, bæði próf og verkefni. Og svo er bara að byrja að læra undir prófin, en ég er í 4 prófum og það seinasta er 19 des. Geggjað.

En hverjum langar að fara með mér á Pál Óskar ball sem er held ég 2. des??


» 5 hafa sagt sína skoðun

06.11.2007 23:05:32 / plebbi

Það eru bara bleikir fílar sem fljúga......

 

 

 

Hef ekki fundið lausnina. En er að reyna leita að svarinu.


» 5 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 14
Klukkan
Dagsetning
10. febrúar 2012